Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% starf frá 12. mars nk.
Leikskólinn er verðandi 3ja deilda skóli. Ungbarnadeild fyrir 1-2 ára börn og tvær deildir fyrir 3 til 6 ára börn.
Einkunnarorð skólans eru “Með sól í hjarta” og er mikil áhersla lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu og listsköpun í leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga og grænfánaverkefni Landverndar.
Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leitað er eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um áherslur í starfi leikskólans má sjá á heimasíðu skólans: alfasteinnhorgarsveit.is og á heimasíðu Hörgársveitar: horgarsveit.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á alfasteinn@horgarsveit.is Upplýsingar gefa Hugrún Hermannsd. skólastjóri eða Sigríður Þorsteinsd. aðstoðarskólastjóri í síma 460-1760, netfang alfasteinn@horgarsveit.is