Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022.
Markmið laganna er að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að öll börn fái þá þjónustu sem þau þurfa á að halda á hverjum tíma án hindrana og frá réttum aðilum. Fyrsta skref foreldra sem vilja óska eftir samþættri þjónustu er að leita til tengiliðar farsældar sem starfar í nærumhverfi barna t.d. í skólum og heilsugæslum. Hlutverk tengiliðar er að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþætta þjónustu. Á þjónustugátt Akureyrar er hægt að sækja um samþætta þjónustu.
Tengiliður farsældar í leikskólanum Álfasteini er Bára Björk Björnsdóttir, sérkennslustjóri barabjork@horgarsveit.is.
Nánari upplýsingar um lögin og fleira tengt þeim má finna á vef Hörgarsveitar og á sérstökum vef um lögin:
