Álfasteinn 30 ára
26. 05. 2025
Föstudaginn 23. maí héldum við hátíð í tilefni af 30 ára afmæli Heilsuleikskólans Álfasteins. Við fengum marga góða gesti í heimsókn og það var mikið fjör, börn og starfsfólk sungu nokkur lög og haldnar voru ræður. Það var hægt að hoppa í hoppuköstulum, spila fótbolta, fá blöðrur, skoða listaverk eftir börnin og myndir frá framkvæmdum og lífinu í leikskólanum í gegnum árin. Að sjálfsögðu var hægt að gæða sér á afmælisköku og kaffi eða safa.
Við þökkum öllum þeim sem sáu sér fært að koma og gleðjast með okkur og þökkum kærlega fyrir góðar gjafir og kveðjur sem bárust okkur.





