Baráttudagur gegn einelti og dagur Jákvæðs aga 2024
08. 11. 2024
Ævintýradaginn þetta árið ber upp á sama dag og baráttudagur gegn einelti sem er jafnframt dagur Jákvæðs aga. Við mynduðum vináttuhringi í útiverunni í morgun í tilefni af því og sungum lagið Við erum vinir. Allir tóku undir og knúsuðu svo vini sína á eftir.

