Innskráning í Karellen
news

Dagur leikskólans 6. febrúar 2025

24. 01. 2025

Í tilefni af árlegum “Degi leikskólans” langar okkur starfsfólki Heilsuleikskólans Álfasteins í Hörgársveit að segja frá vexti skólans og starfinu hér.

Leikskólinn opnaði í júlí 1995 og verður því 30 ára í sumar. Í upphafi var Rannveig Oddsdóttir leikskólastjóri og Hugrún Ósk Hermannsdóttir deildarstjóri en hér voru fyrstu árin 16 börn, þrír starfsmenn og húsið aðeins 100 fm að stærð, ein deild og engin starfsmannaaðstaða. Síðan þá hefur runnið mikið vatn til sjávar enda mikil fjölgun íbúa átt sér stað í sveitarfélaginu. Nú er leikskólinn 4ja deilda, 850 fm að stærð, með fjölnota íþróttasal og starfsmannaðstöðu en búið er að byggja við leikskólann fjórum sinnum vegna fjölgunar.Á komandi dögum verður fjöldi barna orðinn yfir 80, á aldrinum eins til sex ára og starfsmenn 30 talsins. Núverandi leikskólastjóri er Hugrún Ósk Hermannsdóttir og aðstoðarskólastjóri er Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir.

Einkunnarorð Heilsuleikskólans Álfasteins eru: “Með sól í hjarta”

Mikil áhersla er lögð á umhyggju fyrir barninu sem einstakling með réttindi og skyldur. Barnið á rétt á að þroskast í gegnum leik á eigin forsendum eins og frekast er unnt og velja sér viðfangsefni undir leiðsögn kennara. Í leikskólanum á að vera gaman að leika sér og vera til. Lögð er áhersla á virðingu og jákvæðni í samskiptum milli allra í leikskólanum. Með leikskólastarfinu er einnig miðað að því að sjá börnin þróa með sér sterka sjálfsmynd, lífsgleði og ánægju, ásamt því að þau verði sjálfsöguð og fær um að sýna virðingu og vináttu í samskiptum. Leitast er við að börnin læri að bera virðingu fyrir náttúrunni og njóta hennar.

Við höfum lengi unnið eftir hugmyndafræði Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttir og Jákvæðs aga auk þess að gera ýmis verkefni tengd Grænfána Landverndar. Við höfum nú bætt við starfið okkar vináttuverkefninu Blæ. Hér á eftir kemur umfjöllun um helstu áherslur okkar í starfinu.

Heilsustefnan leggur áhersla á hollt og fjölbreytt fæði þar sem markmiðið er að auka grænmetis- og ávaxtaneyslu barna. Boðið er upp á ferskmeti þar sem allur matur er unninn á staðnum og lögð áhersla á að nota harða fitu, salt og sykur í hófi. Við samsetningu matseðla leikskólans er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar.

Börn í heilsuleikskóla fá skipulagðar hreyfistundir 2 sinnum í viku. Hreyfistundirnar eru skipulagðar fyrirfram þar sem markmiðið er að auka samhæfingu, jafnvægi, kraft og þor barnanna. Leitast er eftir að hreyfingin sé framkvæmd á sem fjölbreyttastan hátt við ólíkar aðstæður. Einnig er mikil útivera og svæðið við leikskólann nýtt til gönguferða.

Lögð er áhersla á skapandi vinnu, þannig æfast þau í samhæfingu handa og augna, öðlast sjálfstraust og læra að nota eigið hugvit. Börnin öðlast færni í að koma hugmyndum sínum á framfæri í máli, myndum, söng og leikrænni tjáningu.

Við upphaf leikskólagöngu fær hvert barn eigin heilsubók, sem í er skráð þroski og færni barnsins í tengslum við markmið Heilsustefnunnar. Í bókina skrá kennarar heilsufar barnsins, hæð og þyngd, lífsleikni, úthald, þekkingu á litum og formum, hreyfifærni, næringu og svefn og færni í sköpun. Skráningin gerir kennurum og foreldrum kleift að fylgjast með þroskaframvindu barnsins í leikskólanum.

Jákvæður agi er uppeldisstefna byggð á sjálfsstjórnarkenningum. Jákvæður agi kennir félagsfærni og lífsleikni. Þegar barnið þroskast og eflir getu sína verður það þátttakandi í því ferli að finna lausnir og setja mörk. Meginreglur Jákvæðs aga hjálpa til við að byggja samband væntumþykju og virðingar og þær auðvelda að finna lausnir til frambúðar. Jákvæður agi byggir á kennslu, skilningi, hvatningu og samskiptum. Grunnhugtökin eru eftirfarandi: Virðing sem endurspeglast í þeirri kurteisi sem fólk sýnir hvert öðru, hvernig það talar við aðra og um það og hvernig það fer með eigur annarra. Tal og framkoma sem einkennist af virðingu veitir fólki þá reisn sem því ber. Góðvild er að sýna væntumþykju og hlýju í verki en ekki að skamma, niðurlægja eða lesa yfir öðrum. Festa er að meina það sem sagt er og sjá til þess að fyrirfram ákveðnum verkefnum sé lokið. Á þann hátt lærist að það sem sagt er stendur.

Grænfánaverkefni Landverndar er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni sem við í Álfasteini tökum þátt í og hafa börnin á Álfasteini í því tilefni gert með sér umhverfissáttmála sem er eftirfarandi: Við viljum hugsa vel um jörðina og hafa náttúruna fallega. Rusl á að fara í ruslið. Það má ekki fara í moldina, grasið, vatnið eða blómin. Við ætlum að endurvinna allt sem hægt er og skila jörðinni því sem við höfum tekið. Við viljum fræðast og fræða aðra um umhverfi okkar. Á þennan hátt sjáum við til þess að komandi kynslóðir njóti þess sem jörðin hefur upp á að bjóða. Álfasteinn hefur nú hlotið viðurkenningu frá Landvernd átta sinnum.

“Lubbi finnur málbein” er námsefni sem við á Álfasteini leggjum mikla áherslu á að tileinka okkur í gegnum leikinn og er það hugsað til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn. Lagt er upp með fjölþætta skynjun sem líkja má við að börnin nemi málhljóðin í þrívídd. Með samþættingu heyrnar- og sjónskyns, ásamt hreyfi- og snertiskyni, verða hljóðin nánast áþreifanleg fyrir börnunum. Lubbi er íslenskur fjárhundur sem hjálpar börnunum að leita að málhljóðunum og er þetta gott veganesti þegar kemur að lestrarnámi síðar meir.

Vináttuverkefnið Blær er forvarnarverkefni gegn einelti á vegum Barnaheilla og byggir á eftirfarandi gildum, þ.e. virðingu, hugrekki, umburðarlyndi og umhyggju. Verkefnið var þróað og mótað af Mary Fonden og Red Barnet – Save the children í Danmörku. Námsefnið um Blæ var tekið í notkun í Danmörku árið 2007 og hefur skilað miklum árangri.

Til að börnum líði vel og þroskist á jákvæðan hátt þarfnast þau góðra vina og félaga. Þess vegna er nauðsynlegt að huga að samskiptum barna um leið og þau fara að umgangast jafnaldra sína daglega. Þegar við kennum börnum að koma vel fram hvert við annað alveg frá unga aldri getum við fyrirbyggt að einelti komi upp síðar. Það er grunnurinn að forvarnarverkefninu Vináttu.

Með bestu kveðjum frá öllum á Álfasteini og til hamingju með “Dag leikskólans” 6. febrúar nk.