Innskráning í Karellen
news

Sumarhátíð og afhending Grænfánans

11. 06. 2024

Þann 31. maí síðastliðinn var sumarhátíð Álfasteins haldin. Börnin sungu nokkur lög fyrir gestina og svo fór fram afhending Grænfánans en við vorum að fá hann í 8. sinn. Það var umhverfisnefnd Þelamerkurskóla sem afhenti umhverfisnefnd Álfasteins fánann og gerði það með miklum sóma, gáfu okkur upplýsingar um fánann og hvöttu okkur áfram í verkefninu. Eftir það var hægt að hoppa í köstulum, fá sér grillaða pylsu, fara á hlutaveltu og gróðursetja fræ. Við þökkum kærlega fyrir komuna og góða sumarhátíð.